Trancing like a cat on a hot tin shack, Lord have Mercy
Salt
Frá Lassarónum upp í snobbaðar kerlingar
vera nóg að gera frá því maður kom á svæðið. Ekki búið að
gefast mikill tími í að segja sögur hérna á Spliffinu. Eða
eins og söngkonan sagði um árið "We don´t need another hero".
Hvernig svosem það tengist nú málinu. En eigum við nú ekki að
renna í fljótheitum yfir það sem er búið að gerast og leyfa
nokkrum myndum að tala sínu máli. Á milli vinnu er maður
búinn að nýta helgarnar meira eða minna í að vera úti á
leitið en þurftum að snúa svona tólf sinnum við því það gleymdist
alltaf eitthvað. Veski, skór, nefndu það. Ég sá um keyrsluna að
þessu sinni þar sem Svanurinn náði að slasa sig í fótbolta fyrr í
vikunni. Þetta var viljandi svo hann gæti legið í ölinu á leiðinni.
Hann kann þetta drengurinn. Jæja við lentum á svæðinu aðeins of
seint en fórum strax að veiða. Veiddum ekkert. Ekki heldur Addi og
Hervör. Slappt. Komum svo inn í hús svangir og þyrstir. Voru ekki
einhver gamalmenni á milli sextugs og sjötugs búnir að koma sér
fyrir í húsinu. Við létum það á okkur fá. Í fyrstu allavegana. Þar
til að það kom í ljós að þetta voru hommar. Já eldgamlir hommar.
Þetta var ekki Hervöru bjóðandi, eða reyndar okkur öllum. Voru utan
í hvor örðum endalaust. Ahhhh. Þetta var ekki alveg að ganga. Hef
ekkert á móti hommum en ef þeir eru svona gamlir og í einhverju
keleríi þá gengur það ekki upp. En það eru sem betur fer 2 veiðihús
við Fnjóská. Stungum af í hitt húsið sem var ekki alveg eins gott.
En það slapp. Þar höfðum við það bara fínt, Grilluðum, sungum og
drukkum í okkur kjark fyrir átök næsta dags. Þar gekk okkur
svaklega vel. Tókum fullt af flottum bleikjum og nokkra
urriðatitti. Laxinn lét ekki sjá sig í þetta sinnið. Svo var fólk
frekar þreytt þetta kvöldið. Spilaður var hálfur manni og svo bara
sofnaði fólk. Daginn eftir tók Addi svo fína bleikju. Það var allt
Reykjadalsá í Borgarfirði. Á sem Arnar Smári valdi fyrir okkur í
janúar minnir mig. Þar sem það var ekki búið að rigna í fleiri
vikur þá rann varla blessuð áin þannig að það má líta á þessa ferð
sem góða sumarbústaðarferð í góðum félagsskap. En það var reynt
bara svona upp á grínið liggur við. Það var eitt svæði sem var
möguleiki. Addi Stóri hringdi í mig fyrsta kvöldið og sagði að
leigutaki árinnar hefði hringt í sig upp í vinnu í Lax-á og sagt
hafa séð 2 laxa á stað sem hét Klettsfljót. Von kviknaði og við
fórum beinustu leið þangað daginn eftir. Ég held að þessi blessaði
leigutaki hafi bara að verið að ljúga þessu helvítið á honum til að
halda veiðimönnum við efnið og gefa þeim von. Því við sáum ekki
kvikindi þarna. Ekki einu sinni hornsíli. Börðum þennan stað fram
og aftur. Þannig að við gáfumst bara upp. Eða þannig lagað. En
þetta var samt snilldarferð eins og sú fyrri. Grillað, sungið og
gloríur. Seinna kvöldið fór reyndar vatnið hjá okkur. Bæði heita og
kalda. Potturinn varð eins og drullumall. Við reyndum nú okkar
besta við að skila bústaðnum þokkalegum. Tókum drulluga vatnið úr
pottinum. Suðum það og vöskuðum upp. Enda fékk ég símtal um leið og
ég kom heim, frá Adda. "Hvernig skilduð þið eiginlega við
bústaðinn? Mennirnir sem voru að mæta uppeftir sögðu að það væri
búið að skíta og míga í pottinn. Hann sagði þetta nú samt með
4000 þús laxa í fyrra. Og á sama tíma í fyrra voru að veiðast svona
60 laxar á dag. Reyndar á 16 stangir. En nú komu 3 og við áttum
Miðsumarsblótið að Holti í Síðu nálægt Kirkjubæjarklaustri. Hannes
sjálfur var gestgjafinn og var spilað á gítar og sungið fram undir
morgun. Bjarni Gunnars og Helga kærastan hans Bjarni mætti að
sjálfsögðu með netabolinn eins og honum er einum lagið. Þið sem
þekkið til netabolsins vitið að það verður enginn svikinn af þeirri
Mættur á Landið Góða
föstudaginn síðasta og hef bara einfaldlega ekki haft
kjarkinn til að koma með færslu frá því að ég kom heim. En nú
er ég búinn að peppa mig upp. Síðustu dagar fyrir prófið voru
hrein geðveiki. En mér til góðs var rigning og engin
sólarglæta í nær tvær vikur áður en prófið skall á. Þannig að
maður náði að læra í ró og frið og engar strandarferðir eða
því um líkt freistaði manns. Síðustu vikuna þá var maður í
skólanum til svona 3 um nóttina en á þá síðustu ákvað ég
þegar klukkan var 4 að nóttu að ég nennti bara einfaldlega
ekki að keyra til Fredericia og leggja mig þannig að ég bara
hellti upp á aðra kaffikönnu og var bara í skólanum þar til
að prófið byrjaði. Sem var 14 daginn eftir. Mér gekk svo mjög
vel í prófinu. Sem er bara gott og léttir að þetta sé búið í
bili. Þessi langa vaka var ekki sniðug að því leitinu til að
ég átti eftir að tæma íbúðina mína áður en ég myndi fara í
lest kl. 3 um nóttina. Ég var svo þreyttur þegar ég kom heim
að ég stillti 3 vekjaraklukkur á klukkutíma. Varð að leggja
mig. En ég náttúrulega rumskaði ekki við þessar klukkur og
svaf í 5 tíma. Þá hófst algjör geðveiki við að reyna að tæma
blessuðu íbúðina. En því miður þá náði ég því ekki alveg og
var handboltaliðið sem á íbúðina ekki par sátt með mig. Hefði
kannski bara átt að panta flug á laugardeginum en landið góða
kallaði hástöfum. En ég bauðst til að borga bara þrif á
þessu. En ég tók eins mikið og ég gat og 10 mín í þrjú þá
keyrði ég sem óður maður á lestarstöðina og hljóp um borð í
lestina sem var að fara. Settist svo á móti einhverri stelpu
löðursveittur og ógeðslegur. Skammaðist mín hálfpartinn. En
svona er þetta bara. Ekki tók betra við þegar ég kom á
Kastup. Þar var einhver lengsta og mesta röð sem ég hef lent
í á ævinni. Tók 1 og 1/2 tíma. Þannig að ég þurfti líka að
hlaupa upp í flugvél og svitnaði ég enn á ný. Þannig að við
lendingu þegar hún mamma kom og sótti elskulegan son sinn þá
angaði hann eins og ógæfumaður af verstu gerð. En maður var
nú fljótur að þrífa sig þegar maður lenti heima. Lagt sig í
nokkra tíma og skellt sér svo í grill til Gulla. Svo eftir
matinn var skellt vel í sig og kíkt í bæinn. Eða allir nema
Gulli. Skilst að hann sé að verða eitthvað Handycap
drengurinn. Fín bæjarferð. Daginn eftir var svipað uppi á
teningnum. Nema þá var kíkt til Gvendar Hafþórs ásamt Gvendi
Haarde og Danna. Það var bara mjög fínt eins og fyrri daginn.
Svosem engir deitailar sem þarf að fara í frá því kvöldi nema
að við sátum á Celtic til að ganga sex í fínu fjöri.
Sunnudagurinn var eftir því. Svo mætti maður á mánudeginum
galvaskur til vinnu hjá Úti og Inni. Það er sko ekkert frí
tekið á þessum bænum. Á þriðjudagskvöldið kíktum við Addi í
Kleifarvatn og bleyttum í. Leyst nú satt best að segja ekkert
á þessa uppastungu Adda að fara þangað. Hef farið 3 sinnum
þangað og ekki fengið svo mikið sem eitt högg. Það virtist
ætla að endurtaka sig en um 23 leitið ákváðum við að reyna
einn stað áður en við héldum heim. Og það var eins og við
manninn mælt. Það lyngdi alveg og vatnið var eins og spegill
og þá fór hann loksins að taka. Fengum þarna einhvern slatta
við vorum svo góðir að gefa þeim öllum líf. Hættum ekki að
veiða fyrr en kl. 2 um nóttina. Þá fattaði ég að ég þyrfti að
mæta til vinnu morguninn eftir. En frábært kvöld engu síður.
En á morgun föstudag tek ég hinsvegar frí í vinnunni, en þá
verður haldið norður yfir heiðar og það til veiða í Fnjóská.
Eins og fyrri daginn þá verður fríður hópur þar á ferð en
nýráðinn starfsmaður Vero Moda sem er enginn annar en Svanur
Karlsson, Addi Stóri og frú munu vera á svæðinu. Við Svanur
fórum einmitt áðan og keyptum veiðidót fyrir alltof mikið. En
þetta kostar allt saman skyldinginn. Skotsilfur. Þar sem að
Fnjóská liggur um Vaglaskóg þá mun ég sjá til þess að
einungis verður spilað lagið Vor í Vaglaskóg alla helgina.
Ekkert annað. Jæja þetta er svona yfirlit yfir það sem er
Hann var ekki vanur því að lakka á sér neglurnar þessi.
Hann Arnar bað mig fyrir hönd Kirkju Jesú Krists Hinna Síðari Daga
Heilögu að varpa þessu hér á síðuna. En fólk mun sjá sjálfann
skaparann ef það horfir á þessa mynd í um mínútu og horfið svo
annað hvort á vegginn fyrir framan ykkur eða lokið augunum. Enn
gerast kraftaverkin, og nú hér á Spliff. Já ég segi það og skrifa
Hún sat bara og lakkaði á sér neglurnar
maður orðinn einn í kotinu. Hef ekki þurft að gera handtak á
heimilinu í tæpa viku. Bara setið í sófanum og horft á
sjónvarpið eða lært. Mikið er þetta þægilegt. En nú styttist
hinsvegar í heimkomu. Mæti á klakann 29 júní. Fram að því eru
bara lærdómur og svefnlitlar nætur sem verða í fyrirrúmi. Svo
er það bara veiði og fíneri. Byrja reyndar að vinna þarna
strax mánudaginn 2 júli. En þetta er svo skemmtileg vinna
þarna uppá Úti-inni að þetta verður bara stuð. Annars er það
ekki mikið meira sem er í gangi. Nema bara að ég er að dunda
mér við að rífa skinn af líkamanum. Hef aldrei lent í öðru
eins flagni. En eftir þetta blíðvirði hér síðustu daga þá
flagna ég bara. Gengur ekki. En það er spáð rigningu hér út
næstu viku held ég bara þannig að maður ætti að geta einbeitt
sér eitthvað í skólanum. Að skoðannakönnuninni hér að neðan
að dæma þá er Helgi Björns klárlega töffarinn í tónlistinni.
Kem svo með einhverjar glóðheitar fréttir hér á næstu dögum.
Ef það koma einhverjar þá er Spliffið fyrst til að birta þær.
Ú je
áðan um það að öllum hátíðarhöldum dagsins yrði frestað vegna
veðurs. En fyrir þremur dögum fékk ég annan póst frá þeim um
að veðurspáin væri ekki góð fyrir þjóðhátíðardaginn en við
Íslendingarnir myndum nú ekki láta það stöðva okkur. Þannig
að þeir hafa eitthvað bugast skipuleggjendur. En ég skil þá
svosem þar sem að ég hef aldrei lent í annarri eins rigningu
og áðan. Var staddur í Skjern og það var bara flóð á götunum.
Fór í gær að hjálpa honum Villa að ganga frá íbúðinni sinni
þar sem hann er að fara að flytja. Tók með mér móður mína og
hana Kristínu vinkonu hennar sem eru í heimsókn. Þær þrifu
hátt og látt á meðan ég tók af mér að gíra og græja veggina á
heimilinu. Þ.e.a.s spasla og annað. Villi hvergi sjáanlegur.
En svo mætti hann þegar verkið var að klárast himinlifandi
með afraksturinn. Svo var farið út að borða um kvöldið á hinu
sívinsæla Pakkhúsi. En ég mæli með hér við alla þá sem koma
til Danmerkur að gera sér ferð til Skjern á Pakkhúsið og fá
sér steik. Hef prófað nokkur steikhúsin í DK á þessum tíma
sem maður er búinn að vera hérna en Pakkhúsið stendur uppúr.
Villi var svo ánægður og þakklátur að hann ákvað að bjóða
okkur öllum. Þannig að ég segi bara takk Villi.
kallaður kóngurinn í íslensku tónlistarlífi. Stendur fyllilega
undir því nafni en ég hef nú verið að spá í hver sé nú mesti
töffarinn. Tveir koma til greina. Það er kóngurinn Bubbi og svo að
Hahahaha
fótboltanum. Get ekki að því gert en mér finnst þetta bara alveg
meiriháttar að sjá þá þarna á botninum. Alveg æðislegt. hehe. Svo
eiga þeir F.H á morgun sem taka þá eflaust í bakaríið eins og
Ólafsvík upp. Reyndar tæpt þar sem þeir eru líka á botninum í 1.
hefur aldrei verið neðar á heimslistanum. 109 sæti. Stórþjóðir eins
og Benin, Grænhöfðaeyjar, Botsvana og Malaví eru í sætunum þarna
fyrir ofan okkur. Þetta er alveg meiriháttar. Hvaða þjóð er annars
Benin? Þetta er ekki aumur félagsskapur sem við erum í eins og
greininni hans Adda hér að neðan verður tekin fyrir í söguhorni á
Við verðum bara að Joostera þetta
fluttur í álverið í Straumsvík, það er frábært, nægur hiti og
ál. Annars hefur verið nóg að gera seinustu vikurnar, bara
leika sér að veiða, æfa eða lyft þar sem ég er meiddur þessa
dagana, helvítis tognun í skriðfætinum. Ég var um daginn í
ræktinni Hress og hvern haldið að ég hafi hitt annan en
indjánahöfðingjan Bjarna Gunn, drengurinn er orðin ótrúlega
köttaður, hann er víst að fara að taka þátt í næsta
þrekmeistara, aldrei hefði ég trúað þessu, sjálfur Bjarni
Gunn í þrekmeistarann. Ég kíkti í heimsókn til Stjána og
Villa í Dk, við Hervör gistum á Michael Schumi svítunni,
ótrúlegt útsýni yfir Ráðhúsplanið í Köben, en það setti smá
svip á herbergið að það virtist ekki hafa verið yfirfarið
síðan í seinni heimstyrjöldinni. Við Hervör kíktum í tívolíð
með Stjána, Villa og Jóa og Huldu. Það ótrúlega merkilega við
það var að Villi er alger kelling, eina tækið sem hann þorði
í var klessubílarnir, hann þorði ekki einu sinni í
barnarússíbanann, ég hef aldrei séð annan eins kettling, en
hann stóð sig samt vel í ferðinni, talaði dönsku eins og
grænlendingur á 15 bjór. Helvítið hann Stjáni hringdi síðan í
mig um helgina á Meatloaf tónleikum vá hvað ég öfundaði hann,
I would do anything for love osfv, síðan sá hann auðvita Kim
Larsen ég hef reyndar aldrei skilið hvað menn sjá við hann,
maður skilur ekkert hvað hann segir. Nú bíð ég bara í ofvæni
eftir því að Stjáni komi heim þar sem ég þarf að fara í að
setja upp sólpall hér við íbúðina mína í álverinu. Við Stjáni
erum mjög vanir að setja upp sólpalla, gerðum þetta í
boðaföllum á sínum tíma út á Seltjarnarnesinu, mannstu
hahahahahhahahaha, ég leyfi Stjána að segja þá sögu, bless í
Jón Fylkir Stord Fylkir Stjarnan Fram Breiðablik
Megasól
hér í DK. Þvílík molla hérna. Var að enda við að keyra Villa
og Tinnu að sækja bílinn sinn og á mælinum stóð 27 gráður. Og
ekki enn komið hádegi. Þetta er of mikið fyrir mig,
Íslendinginn sem fær aldrei lit. En ég er nú bara ekki frá
því að ég hafi tekið smá lit í gær. Er allavegana helvíti
illt í öxlunum. Það er merki um eitthvað. En við fórum í gær
s.s á stórt Tónlistarfestival sem var hér í grenndinni. Var
nú búinn að lofa Adda að hringja í hann þegar Meatloaf væri
að spila en það var eitthvað sambandsleysi hjá pilt. Grunar
að hann hafi verið með stöng í einhverri ánni með jafnvel
einn stórann á. Þetta var allavegana mikil snilld. Ásamt
Kjöthleifinum var Kim Larsen á svæðinu en hann er helvíti
góður. Þetta er Bubbi þeirra dana. Við mættum þarna um 13
leitið og bjuggum okkur til íslendingabæli þarna á túninu. En
Ribe gengið mætti einnig s.s Tryggvi, Haffi og Ingibjörg.
Þarna sátum við til klukkan 12 að miðnætti með kaldann í
hönd. Dagurinn í dag á nú að fara að lærdóm en það verður
erfitt í þessum hita. Geri ráð fyrir því að hann muni bara
hefjast þegar að það fer aðeins að skyggja á sólu. Er að spá
í að fara bara og kaupa mér sterka sólarvörn og kíkja á
ströndina. Heyrði reyndar í Gulla og Svan í gær. Þeir voru að
fara á tónleika með SSsól. Þetta eru gleðitíðindi að þeir séu
byrjaðir að spila saman aftur. Maður verður að kíkja á gigg
með þeim í sumar. Miklir snillingar þar á ferð. En það er
ekki meira í bili. Farinn að fá mér ís og skella mér í
Nileseneraður
Nielsen eða Þórdís Brynjólfs eins og margir þekkja hann sem fagnar
sjálfsögðu þessarri miklu hetju til hamingju með daginn, En hann
mun taka á móti gestum á heimili sínu á Sunset Boulevard nr. 7. í
kaffi og kleinuhringi nú síðdegis. Hann er svo langt á eftir í tíma
þannig að það er ekki enn komið síðdegi hjá honum. Allir velkomnir.
Já honum Þórólfi er margt til lista lagt fyrir utan að vera
afburðar námsmaður. En einnig er hann afburðar veiðimaður,
handboltamaður og það sem fæstir vita er að hann á Íslandsmetið í
að Fleyta kerlingar. En hann setti sögulegt met fyrir um 3 árum
þegar hann fleytti 53 kerlingar á Vífilsstaðavatni. Geri aðrir
að þetta hafi verið heitasti dagurinn nú í sumar. 33 gráður stóðu á
mælinum í Horsens þegar ég var á leiðinni heim úr skólanum. Hins
vegar voru 28 gráður þegar komið var í Vejle þannig að þetta hafa
verið um 30 gráðurnar í dag. Glampandi sól og frekar erfitt að
sitja inni til klukkan 16 í svona blíðu. Spáð er áframhaldandi
blíðu sem er bara gott. En svona lítur kortið út fyrir næstu fimm
frá Arnari að vegna mikilla anna við bæði kirkjustörf í Kirkju Jesú
Krists Hinna Síðari Daga Heilögu og tímafreks undirbúnings fyrir
Feneyjaferð þar sem hann verður fulltrúi Íslands í
Feneyjatvíæringnum 2007 hefur hann ekki getað ávarpað fólk hér á
Spliff síðustu misseri. En hann lofaði því þó að fara að koma með
grein á næstu dögum. Annars segi ég bara: Farið
Einn PK takk.
er ástandið. Skil nú ekkert í þessum dofa í nefinu þar sem ég
fékk ekki högg á nefið. En þetta er bara töff. Ekkert í gangi
nema bara skólinn. Enn tæpur mánuður eftir af þessarri
vitleysu. Farinn að sjá sumarfríið í hyllingum. Ómögulegt að
vera að sitja inni í þessum hita. Eða eins og maðurinn sagði
í laginu hér forðum " We can´t go on together, with suspicion
minds". Hvernig svosem það tengist þessu, en þetta sagði hann
allavegana. Annars er ég að spá í að fara að dansa bara eða
gera einhver óskunda til að rífa aðeins upp stemmninguna. Við
Fallegri í dag.
fólki þessa dagana en hann er í öllum helstu tímaritum dagsins í
gær. En hann var að gerast framkvæmdarstjóri Agnsins. Tek þessa
Agnsins og hefur Freyr Heiðar Guðmundsson tekið við. Nýi
ritstjórinn er auðvitað mikill áhuga maður um veiði og vel að sér
um tölvur og meira en tilbúinn í slaginn og á eftir að gera marga
skemmtilega og spennandi hluti á vefnum. Eins og allir vita fylgja
allt af nýjar áherslur nýjum mönnum og verður spennandi að fylgjast
með framhaldinu. Freyr Heiðar Guðmundsson er nemandi í verkfræði í
Háskóla Íslands. Mikill uppgangur er á Netinu með veiðiskrifin, en
Vötn og veiði, SVFR og Krafla hafa verið öflug að skrifa um
Get ómögulega látið sjá mig meðal almennings. Segi það kannski ekki
en ástandið á andlitinu á mér er virkilega slæmt. Þannig er mál með
vexti að ég fór á mína síðustu æfingu á fimmtudaginn hjá
Fredericia. Allt í góðu og fín æfing. Nema hvað að þegar það eru
svona 20 mín eftir af þessu þá fæ ég líka þetta fína högg á
kinnbeinið. Og ég bara steinlá þarna. Svo heyri ég bara þarna
eitthvað babl í Fannari. "Hvað er þetta, ertu ekki Íslendingur?
Getur ekki verið að liggja þarna í gólfinu" Þannig að ég stóð upp
og hringlaðist næstum niður aftur. Vankaður. Svo hrúgaði
sjúkraþjálfarinn í mig einhverjum pillum þarna. Þær hjálpuðu. Fór
svo með Fannari á heilsugæsluna að láta kíkja á þetta þar sem var
orðinn eins og Fílamaðurinn í framan. Þar var mér bara sagt að
borða bara þessar pillur og það nóg af þeim. Fór svo í skólann í
gær. Það héldu náttúrulega allir að ég hefði verið laminn.
Skiljanlega. En núna heldur þetta bara áfram að bólgna og bólgna.
Þyrfti eiginlega að eiga mynd af þessu. En þetta fylgir þessu
fest. Eða bæjarhátið eins og það túlkast á íslensku. Troðfullur bær
og hljómsveitir að spila um allt. Var nú bara til 23. Var alltof
ljótur til að vera þarna, nei nei. Svo þurfti nú ekki marga bjóra
til að finna ágætlega á sér þar sem maður var búinn að taka nokkrar
pillur með þessu. hehe. Svo næstu helgi er svaka tónlistarhátíð
hérna. Meatloaf, Kim Larsen og fleiri snillingar eru að spila.
Meatloaf er nú eitthvað fyrir hann Stóra. Þú bjallar bara ef þú
villt kíkja. Annars er það ekki fleira í bili. Jú ég vaknaði hálf
átta í morgun. Hvað er það? Á laugardagsmorgni. Það gerist ekki oft
Bjarni var tekinn með 2 kíló af Kókaíni í Leifsstöð á
It's a race
meðstjórnandi Spliff er bara ekki að standa sig í stykkinu.
Hann er bara í einhverju svínaríi og kvennafari í tíma og
ótíma. En jæja ég fór þarna til Köben á laugardaginn. Villi
slóst með í för og er hann án efa einhver sá allra lélegasti
leiðbeinandi í umferð sem sögur fara af. Ég keyrði semsagt og
hann sagði mér í sífellu að beygja til hægri. Allstaðar átti
að beygja og eftir um klukkutíma hringferðir hingað og þangað
um Köben náðum við loks á leiðarenda. Palace Hotel á
Ráðhústorginu. Já Agnarsson parið var eitthvað að slá um sig
greinilega. En þau gistu í sama herbergi og Michael
Schumacher gerði einhverntíma. Allavega hét herbergið hans
nafni. Við þangað. Tókum 2 kalda inn á herbergi og fórum svo
á stað sem heitir Bryggeriet eða Brugghúsið. Þar mættu Jói og
Hulda kærasta hans og hittu okkur. Byrjað var á því að fá sér
líters bjór í svakalegu glasi sem var um 40 cm hátt en
skilyrðin fyrir að fá slíkan bjór voru sú að maður þurfti að
afhenda annan skóinn og í staðinn fékk maður svona
risastórann stráskó. Tókum tvo svoleiðis og með því borðuðum
við drengirnir 1.4 kílóa risasteik. Þýðir víst ekkert minna.
Hún bragðaðist vel. Þaðan var haldið í Tívolíið en þangað hef
ég ekki farið. Það var svaka stuð. En Villi greyið fékk
eitthvað i magan í svona rólu sem snerist í einhverri 50
metra hæð. Hann sagðist ekki getað farið í fleiri tæki. En
svekkjandi var að við misstum af rússibananum sem var ekki
nógu gott en við tókum fallturninn í staðinn. Það náðist að
draga Villa í hann. Það var stuð. Tókum nokkrar ferðir en í
einni þeirra ákvað Villi á upp leiðinni að losa um
öryggisbeltið mitt. Ekki nógu sniðugt finnst mér. En það
hafðist að setja það aftur á áður en við fórum niður.
Helvítis fíflið. Fær þetta borgað. Eftir þetta fórum við á
Samsbar þar sem Addi ætlaði að sýna snilli sína með
hljóðnemann en þar var svo troðfullt og leiðinlegt að við
fórum út. Létum svo einhverja gæja hjóla með okkur í svona
vögnum á einhvern risastórann skemmtistað sem ég man ekki
nafnið á. Létum þá fara í kapp. "It's a race" En þetta var
síðasta kvöldið þar sem var opið á þessum stað þannig að það
flæddi allt í ódýru áfengi sem var anskoti fínt. Fórum þar
vel í því á hinn Samsbar. Þar var enn leiðinlegara. Það var
komið gott í bili. Tókum þynnkufyrirbyggjara á McDonalds sem
fór vel í mannskapinn nema Adda greyið sem vaknaði þynnri en
nokkru sinni fyrr og var ekki viðræðuhæfur fyrr en um klukkan
17 á sunnudeginum. Þá fórum við á viðbjóðslegan pizzastað og
fórum svo í siglingu. Hún var fín svosem. Annars er það ekki
þarna í sífellu. Skipti engum togum um hvort það var við
grænmetisborðið eða kassann. Það á að henda svona liði út. Óbjóður.
Gingsen virkar ekki.
svæðið. Það er bara búinn að vera einhver slappleiki í gangi.
Eitthvað vesen með asmann. Það reddast. En í gær þá fór ég að
sækja asmalyf í apotekið, þar sem mitt var búið. Þá var verið
að bjóða upp á gingsen í svona vökvaformi. Stóð utan á
pakkanum extra strong. Jæja ég var líka svona helvíti
þreyttur að ég fékk mér 2 skot af gingsen. Klukkan var svona
um 15 leitið. Átti að vera æfing þarna 17:15. Allt í góðu með
það nema að ég legg mig þegar ég kem heim þar sem ég var
orðinn svo þreyttur eitthvað eftir daginn. Stilli klukkuna á
16. Þegar ég vakna og tel mig vera tilbúinn til að fara á
æfingu þá er klukkan orðin 20. Góður Kristján, góður. Ekkert
við því að gera svosem. Nema þetta Gingsen var greinilega að
virka í öfuga átt. Um kvöldið næ ég svo ekkert að sofna fyrr
en um 2 leitið. Tel orsökina vera allur svefninn fyrr um
daginn. En það vildi nú ekki betur til en að ég svaf líka all
hressilega yfir mig í skólanum. Þannig að þetta djöf...
Gingsen rusl virkar ekki neitt. Hvort sem það er Rautt eðal
eða í vökvaformi og það extra strong. Þannig að já, þessi
slappleiki er svona það eina sem er að gerast um þessar
mundir. Og svo fer að aukast álagið núna í skólanum þannig að
þetta var kannski ekki besti tíminn til að sofa yfir sig.
Vinn þetta upp á mánudaginn. Þá er frí í skólanum. Langar
reyndar helvíti mikið að fara að veiða í Þingvallavatni eftir
að ég las fréttir um það að í gærkvöldi hefði veiðst 25 punda
mánudag en á morgun held ég til Kaupmannahafnar. En þar hef ég
verið boðaður á fund með Arnari Jóni Agnarssyni. Þetta er semsagt
árlegur fundur Spliff e.h.f sem að þessu sinni verður haldinn í
Köben. Fundarhöld munu hefjast um 2 leitið á hótel Palace við
Ráðhústorgið en þar verður fundarstjóri enginn annar en
maraþonhlauparinn og lögfræðingurinn Hervör Pálsdóttir unnusta
Arnars. Einungis verða rædd alvarleg mál. Annar hluti fundarhalda
verða haldin í Tivoli. Þar verða einnig rædd alvarleg mál. næstu
hlutar verðar haldnir á pöbbum hér og þar. Og það kemur ekkert
sínum með Stjörnunni. Þessar sundskýlur notaði hann allt frá 3
Íslandsferð og Möllermartröðin!!
s.s að skella mér í langt helgarfrí á fimmtudaginn. Arnar
Smári var einmitt að henda Elísu sinni til Berlínar þannig að
hann tók mig með í bakaleiðinni. Það hentaði fínt og brunuðum
við í bæinn. Fimmtudagskvöldið fór svo í það að kíkja aðeins
á Gulla og Jonna sem voru í rokinu í Hafnafirði að leggja
rafmagn í plötu eina. Duglegir drengirnir. Nennti nú ekki
staldra lengi í þeim hörmungum og kíkti í heimsókn til Smára.
Þar fengum við okkur félagarnir ásamt Maraþonhlauparanum
Freysa nokkra kalda og ræddum alvarleg mál. Meðal annars var
rædd þátttaka Freysa í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar en þar
ætlar hann að hlaupa 42 kílómetra og að etja kappi við
Hervöru hans Adda. Sem er víst af maraþon ættum. Þetta er
eitthvað að þessu fólki. En við Addi getum nú ekki verið
minni menn og munum við halda uppi heiðri Spliff og skella
okkur í hlaupið. Hvað við hlaupum langt er reyndar
Elliðavatni í sól og blíðu. Sumarið greinilega að koma þarna heima.
Skellti mér svo í fótbolta í sólinni með drengjunum. Sýndi hreint
ógleymanlega takta eins og svo oft áður. Svo eftir stúss hingað og
þangað yfir daginn var haldið á ný til Smára. Helstu hetjur
bæjarins voru mættar í pókerspil. Það þurfti náttúrlega ekkert að
spyrja að leikslokum á þeim bænum og að sjálfsögðu vann ég eins og
vanalega. Milljónir í vasann, milljónir. Svo var haldið í bæinn með
viðkomu á háskólaballi á Broadway. Þar voru svona um 13 manns að
skemmta sér við undirleik manna í svörtum fötum. Þeim fjölgaði svo
í 15 þegar Gulli og Svanur komu á svæðið. En við dvöldum ekki lengi
þar og héldum áleiðis í bæinn þar sem var tekið létt á því. Tókst
að týna blessuðu kortinu mínu, ekki í fyrsta skiptið. Hefði reyndar
átt að hringja um leið í Villa og ég týndi því þar sem að við týnum
þessum kortum og veskjum yfirleitt á sama tíma. "Villi, tékkaðu nú
hvort þú sért ekki örugglega með þitt" En yfir höfuð bara ágætis
mig humar. Klikkar seint. Hittumst svo nokkrir félagarnir heima hjá
mömmu og ræddum alvarleg mál og tókum í gítar. Kíktum svo eins og
fyrri daginn á bæjarlífið. Enduðum á Celtic til alltof seint.
Stóðum svo þar fyrir utan í dágóðann tíma og hittum þessa líka fínu
Finna sem voru á svæðinu. Okkur tókst þar að ljúga því að þeim að
Arnar Smári væri í raun Eiður Smári. Og það ótrúlega við það var að
þau voru öll að kokgleypa við þessu. Fengu númerið hjá Smára svo
þau gætu nú fengið miða á leik ef þau væru einhverntíma stödd í
Barcelona. Svo löbbuðu þarna nokkrir framhjá aftur og aftur og tóku
og fórum við ásamt Palla bróður í Tungufljót í Biskupstungum.
Vonirnar um að sumarið væri að bresta á þarna heima fuku um veður
og vind þegar við löbbuðum úr bílnum. Slydda og rok. En við létum
okkur hafa það og byrjuðum að veiða. Var nú hægara sagt að koma
flugunni út í þessu en svo var eins og hendi væri veifað og allt í
einu gerði þessa líka miklu blíðu. Logn og sól. Ótrúleg þessar
veðrabreytingar. Það varði þó aðeins í um hálftíma eða svo. Slydda
og rok tók völdin á ný. Við reyndum þó áfram á nýjum stöðum en
ekkert gekk. Öngull í rass veiðilega séð þessi ferð en gaman engu
að síður. Á leiðinni heim gerði svo blindbil á Hellisheiðinni.
þegar ég sé kunnuleg andlit fyrir aftan mig í röðinni. Voru ekki
Finnarnir frá því á laugardeginum mættir þarna. Ég reyndi nú að
láta lítið fyrir mér fara en þau virtust taka eftir mér. Það kom
eitthvað glott á þau. Voru svo einnig í sömu vél og ég. Eintaklega
ánægjulegt. Feginn að hafa ekki lent við hliðina á þeim. Það hefði
En það var nú ekki í þessu flugi. Í þessu flugi voru þær ekki upp á
marga fiska. Önnur þeirra var feit með vörtu á efri vörinni og hin
var Helga Möller. Eins og hún er nú leiðinleg söngkona þá er hún
enn ömurlegri flugfreyja. Málið er að ég sat við ganginn. Þar
þrammaði Möllerinn fram og til baka alla ferðina og í hvert einasta
skipti sem hún fór fram hjá mér þá rak hún sitt spikfeita rassgat
utan í mig. Horfði aðeins á þetta og án alls vafa þá fyllti fjósið
á henni út í ganginn. Þannig að ég skora hér með á Flugleiði að
splæsa í eitt stykki svona stigvél-þrepavél eða hvað sem þetta
kallast. Svona svo hún passi í ganginn í flugvélinni. Þangað til á
hún bara að vera í miðaafgreiðslunni. Allavegana þá svaf ég ekki
dúr í þessu flugi og ef ég komst svo langt að dotta þá hrökk maður
lestarfjandanum. Náði þó annarri þegar klukkan var að ganga hálf
tólf. Sú lest bilaði í Odense og var ég ekki kominn til Fredericia
fyrr en klukkan var langt gengin í 3. Hefði ekki boðið í það ef
Möllerinn hefði verið að þjóna þar líka. En allt endar þetta og
komst ég í rúmið þótt seint hafi það verið. Góð heimkoma var á